Fyrirlestur - Kristján Maack

Leiðin að listinni

Ljósmynd: aðsend / Kristján Maack

Mikið fjölmenni mætti á ljósmyndakvöld félagsins þegar Kristján Maack kom og fór yfir leiðina að listinni. Við þökkum Kristjáni fyrir og öllum gestum og félagsmönnum sem mættu.

Kristján Maack ljósmyndari gerði sl. 35 árum skil í máli og myndum og sagði frá þeim fjölbreyttu verkefnum og viðfangsefnum sem hann hefur átt við síðan um 1990. Hann sagði okkur frá þeirri leið sem hann hefur valið til að komast á þann stað sem hann er á í dag, að sinna sínum eigin viðfangsefnum.

Kristján Maack hefur starfað sem auglýsingaljósmyndari síðastliðin 35 ár og myndað fyrir öll helstu fyrirtæki og auglýsingastofur hérlendis ásamt fjölmörgum erlendum viðskiptavinum.

Kristján lauk BA prófi í auglýsingaljósmyndun í Brooks Institute of Photography í Santa Barbara í Californiu árið 1993 og hefur starfað við ljósmyndun síðan. Verkefnin hafa verið af ýmsum toga
og hafa endurspeglað tíðarandann á hverjum tíma. Jafnframt störfum sínum fyrir viðskiptavini hefur Kristján alltaf myndað sín eigin verkefni og seríur sem ratað hafa í listasöfn og bækur víða um heim.

Ljósmyndir frá viðburði: Gunnar Leifur Jónasson

Ljósmyndarafélag Íslands

Félag atvinnuljósmyndara á Íslandi

http://ljosmyndarafelag.is
Previous
Previous

Jólahátíð ljósmyndara

Next
Next

Canon hátíð 2024