Fyrirlestur - Þráinn Kolbeins
Að segja alla söguna
Ljósmynd aðsend / Þráinn Kolbeins
Þráinn Kolbeinsson er atvinnuljósmyndari sem hefur eytt miklum tíma í að fylgja og mynda hina ýmsu leiðangra fólks. Allt frá hæsta tindi Íslands til regnskóga Tasmaníu leggur hann ýmislegt á sig til að geta sagt einstakar sögur, ýmist með ljósmyndum eða myndböndum.
Í þessum fyrirlestri fór hann yfir undirstöðuatriði þegar kemur að undirbúningi slíkra verkefna. Hvaða nauðsynlega búnað þarf í leiðangrana, allt um tökurnar sjálfar og loks eftirvinnsluna.
Takk fyrir frábæran fyrirlestur Þráinn!